Jæja.. Þá er maður búin að fara á þjóðhátíð og ó meeeeeen hvað
hvar gaman 
Ég og Sirrý lögðum galvaskar af stað rúmlega hálf tólf (þurfti
nebblega sækja meiri bjór handa eiginmanninum hennar Sirrýjar!!!!
og við vorum komnar uppá Bakka um hálf 1. Þar þurftum við
að bíða í ca 15 mín áður en röðin var komin að okkar flugi... Við
tók ca 6 mín flug til Eyja sem var nú bara alveg þokkalegt fyrir
utan smá ókyrrð rétt fyrir lendingu... hehe
Þegar við komum til Eyja náði Anna Stella í okkur á völlinn og
við fórum uppí íbúðina sem hún og Einar voru með á
leigu... Eftir smá stopp, nokkrar flatkökur með hangikjéti og
eins og einn bjór ákváðum við að rölta og hitta ektamann Sirrýjar
(hurru já þau giftu sig á föstudaginn, Innilega til lukku bæði
tvö..) en hann var hjá frænku sinni. Þar stoppuðum við soldið
og kjöftuðum við fólkið (já og drukkum eins og einn bjór...) og svo
var tími kominn til þess að skoða dalinn... Hólmfriður, frænka
Simma, skutlaði okkur niðureftir og við Sirrý ákváðum að fá okkur
göngutúr um dalinn vegna þess að hún var að koma á þjóðhátíð í
fyrsta skiptið (og öruggleg ekki það síðasta...hehe). Síðan
var stefnan tekin á Pizza 67 og þar hittum við fullt af skemmtilegu
fólki... Sátum þar til rúmlega 18:00 en þá var tími komin á
heimferð áður en skrallið byrjaði niðrí dal
(heyrðu já.. ég
held að ég hafi bara sjaldan fengið svona ódýra pizzu *hóst*
)
Rúmlega 20:00 var skundað í dalinn með fullann bakpoka af bjór
og utanyfirfötum og það var ekki farið heim fyrr en rúmlega 05:00
að staðartíma.. (eða þegar ég fattaði að bjórinn var búinn
*ennþámeirahóst*.. erum að tala um 2 kippur af stórum bjór og smá
Tópas-skot
) Tóm gleði og rífand stemmning!! hehe Ég hittir
reyndar ekki Sirrý fyrr en eftir brekkusönginn og svo ekkert aftur
við fórum alltaf á mis við hvor aðra og svo var bara komin tími
á smá lúr áður en maður fór í flug.
Þar sem ég hafði misst af Sirrý í bólið (þegar ég fattaði að
bjórinn var búinn) þá sníkti ég dýnu hjá Árna, vini hans Magga sem
var að vinna með mér í Glitni....
hann var með tjald í
heimagarði einhvursstaðar í Eyjum og var sko ekki lítið ánægður að
hafa kvenmann hjá sér í tjaldinu síðasta kveldið!! hehehehe
Þó
svo að þessi ákveðni kvenmaður harðneitaði að fara úr skónum eða
utanyfirbuxunum áður en lagst var í kvílu
)
Eftir velheppnað kvöld og nótt fór ég i flug um níu um morguninn
og fékk fararleyfi hjá löggunni um 11..... og þá var brunað beint
heim í sturtu og uppí rúm að sofa!! hehehe
En þeir sem fóru ekki á þjóðó þetta árið vil ég bara segja: ÞIÐ
VERÐIÐ AÐ FARA NÆST!!! 
Jæja, þar hafi þið það og nú geti þið farið að naga ykkur í
handabökin yfir því að hafa ekki farið !!! múhohohohohohoho
Bæjó...